Vel búið að starfsfólki

JÁVERK er fjölskylduvænn vinnustaður sem gerir ráð fyrir að aðbúnaður og starfsumhverfi sé með því besta sem þekkist. Starfsandinn er frábær og starfsmannafélagið er mjög virkt og stendur fyrir margskonar skemmtunum og ferðalögum. Starfsmannavelta er mjög lítil og er það til marks um að vinnustaðurinn sé góður.

Að jafnaði starfa á annað hundrað manns hjá fyrirtækinu. JÁVERK leggur áherslu á umhverfis-, öryggis- og gæðamál og ætlum við okkur að vera leiðandi í þeim efnum í mannvirkjagerð á Íslandi.
Við leggjum áherslu á að ráða kraftmikla og metnaðarfulla einstaklinga sem búa yfir frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Við bjóðum upp á frábæran starfsanda og gott starfsumhverfi þar sem möguleikarnir til að vaxa í starfi eru miklir. Þegar störf eru auglýst þá hvetjum við hæfileikaríkt fólk af öllum kynjum til að sækja um, því meiri fjölbreytileiki starfsliðsins er eitt af markmiðum fyrirtækisins og hluti af virkri starfsmannastefnu þess.

content image
content image